Systur - Með Hækkandi Sól, Lyrics - Eurovision 2022 - Iceland ??
Öldurót í hljóðri sál,
þrautin þung umvafin sorgarsárum.
Þrá sem laðar, brennur sem bál,
liggur í leyni – leyndarmál – „þei þei“.
Í ljósaskiptum fær að sjá,
fegurð í frelsi sem þokast nær.
Þó næturhúmið skelli á
og ósögð orð, hugan þjá – „þei þei“.
Í dimmum vetri – hækkar sól
bræðir hjartans klakabönd – svo hlý.
Í dimmum vetri – vorið væna
vermir þitt vænghaf á ný.
Skammdegisskuggar sækja að,
bærast létt með hverjum andardrættir.
Syngur í brjósti lítið lag,
breiðir úr sér og andvarpar – „þei þei“.
Í dimmum vetri – hækkar sól
bræðir hjartans klakabönd – svo hlý.
Í dimmum vetri – vorið væna
vermir þitt vænghaf á ný.
Og hún tekst á flug
svífur að hæstu hæðum.
Og færist nær því
að finna innri ró.
Í dimmum vetri – hækkar sól
bræðir hjartans klakabönd – svo hlý.
Í dimmum vetri – vorið væna
vermir þitt vænghaf á ný.
Текст песни
Главная
»
Lyrics
» Systur - Með Hækkandi Sól, Lyrics - Eurovision 2022 - Iceland ??